Heimsending og fjöldatakmarkanir fram að jólum
Frá og með fimmtudeginum 10. desember megum við taka á móti 100 manns í verslun okkar. Það verður því ekki lengur hólfaskipt, en talið inní verslunina á álagsdögum.
Opnunartími er frá 10-21 alla daga, en breytist í 10-22 frá og með mánudeginum 14. desember.
Við bjóðum áfram uppá fría heimsendingu fram að jólum og verður tekið við pöntunum í heimsendingu til 21. desember.