Dagana 3 og 4 nóvember ætlum við í Garðheimum að halda forleik að jólum. Þá verður verslunin okkar komin í sinn sparilegasta búning og fullt af skemmtilegum hugmyndum af skreytingum og jólagjöfum í hverju horni.
Fjöldi samstarfsaðila ætla að vera með okkur milli kl 16 og 19 með áhugaverðar kynningar og gómsætt smakk til að koma okkur í jólagírinn. Íslensku hönnuðurnir frá Vorhús, Ihanna, Hekla Íslandi, Fabia, Sanö og Tinna Magg verða á svæðinu að kynna vörur sínar og nýjar línur. Blómaskreytar Garðheima verða með sýnikennslur í kransagerð, innpökkunum og ljósaskreytingum og strákarnir í véladeildinni tilbúnir með ráðleggingar varðandi ljósaseríu uppsetningu. Þá verða einstakir afslættir og tilboð í hverju horni og hægt að gera frábær kaup fyrir jólaundirbúninginn. Lukkupotturinn sívinsæli verður einnig á sínum stað og hægt að vinna fullt af frábærum vinningum.