Karfan er tóm
Þurrfóður fyrir útiketti eldri en 7 ára
Hjálpar fullorðnum köttum eldri en 7 ára að takast á við byrjun á öldrunareinkennum. Inniheldur aðlagað magn vítamína, steinefna og annarra mikilvægra efna, m.a. grænt te, fjólfenóla og C-vítamín sem eru allt sterkir andoxarar (þráarvarnaefni) og EPA/DHA fitusýrur sem smyrja liðina og draga úr verkjum.
Kettir sem fara út þurfa orkuríkara fóður. Outdoor þurrfóðrið uppfyllir orkuþörf útikatta enda er það orkuríkara en hefðbundið fóður fyrir inniketti.
Skert starfsemi nýrna er algeng í eldri köttum. Fóðrið inniheldur aðlagað magn fosfórs sem minnkar álag á nýrun og styður þar með við heilbrigða nýrnastarfsemi.
Í Outdoor þurrfóðrinu er nákvæm blanda af fjölómettuðum fitusýrum (EPA og DHA) sem smyrja liði og draga úr liðverkjum. Sömuleiðis inniheldur fóðrið glúkósamín og kondróítin en niðurstöður rannsókna á báðum þessum efnum gefa til kynna að þau séu liðuppbyggjandi og viðhaldi þar með heilbrigðum liðamótum.
Prótein: 28% - Fita: 20% - Trefjar 1.5% - Fosfór: 0.79% - EPA/DHA: 4 g/kg.
Stærð:
Skiptiborð: 540 3300
verslun@gardheimar.is
Opið frá kl 10 - 21 fram til jóla
STIHL verslun opin frá kl 8.00-16.00 alla virka daga