Karfan er tóm
Þurrfóður fyrir Chihuahua hunda eldri en 8 mánaða
Einstök blanda náttúrulegra bragðefna, heppileg lögun og stærð fóðurkúlnanna örvar matarlyst hjá matvöndum hundum en matvendni einkennir oft hunda af smáhundakynum.
Stuðlar að bættri meltingu með góðgerlafæðu (FOS). Vinnur gegn of mikilli gerjun í þörmum og dregur þannig úr vindgangi og illa lyktandi hægðum.
Kúlurnar eru þannig að stærð og í laginu að það er auðveldara fyrir hundinn að ná þeim upp. Sömuleiðis hvetur stærðin og lögunin Chihuahua til að tyggja og hafa þannig eðlilega meltingu þannig að það komi ekki of mikið magn fóðurs í magan of hratt - á þann hátt verður uppþemba í maga ólíklegri.
Lögun fóðurkúlnana dregur auk þess úr tannsteinsmyndun því þær hvetja hundinn til að tyggja og því fá tennurnar ákveðna "burstun" frá fóðurkúlunum. Ennfremur er í fóðrinu kalkbindandi efni en kalk í munnvatni er einn stærsti þátturinn í myndun tannsteins.
Inniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum.
Prótein: 28% - Trefjar: 2.1% - Fita: 16%.
Stærðir:
Skiptiborð: 540 3300
verslun@gardheimar.is
Opið frá kl 10 - 21 fram til jóla
STIHL verslun opin frá kl 8.00-16.00 alla virka daga