Rauðgreni
Rauðgreni er virkilega ilmríkt og fallegt íslenskt tré sem er nokkuð pent um sig. Það er ekki eins barrheldið og önnur tré, en bætir upp fyrir það með fegurð og ilmi. Ómissandi partur af jólahefðinni hjá mörgum íslenskum heimilum.
Leiðbeiningar varðandi lifandi jólatré innandyra:
- Mikilvægast er að tréið þorni ekki.
- Gott er að taka það inn, og ef það var frost, láta það þiðna. Jafnvel setja það í sturtuna og skola af því.
- Þegar það hefur náð herbergishita getur verið gott að skera af 2 cm neðst. (hægt að biðja starfsmenn Garðheima um að gera það þegar tréð er keypt)
- Gott er að vökva með heitu vatni í fyrstu vökvun og síðan með köldu (þó ekki ísköldu).
- Tréið þarf að standa í vatni og getur drukkið mikið hvern dag. Drykkjarþörf fer eftir stærð trésins, tegund og hitastigi í stofu.







