Nordmannsþinur

Nordmannsþinurinn er algengasta jólatré íslenskra heimila. Það er barrheldið, fagurgrænt og stendur vel, svo lengi sem það er vökvað vel.
Nordmannsþinurinn okkar er ræktaður af alúð í dönskum jólatráaskógi. 

*Sérvöldu jólatrén eru einstaklega falleg tré sem eiga að standast ströngustu fegurðarkröfur. 

SKU: MASTER-JT075- Flokkar: , ,

Lýsing

Garðheimar mæla stærð jólatrjáa skv. viðurkenndri aðferð í Evrópu. Grein úr efsta kransi er lögð að stofni trésins og toppur þeirrar greinar telst efsti punktur. Þá eru oft eftir um 20 cm alla leið upp í topp trésins. Margir íslenskir söluaðilar mæla alla leið upp að topp trésins sem skekkir samanburð.

  • Leiðbeiningar varðandi lifandi jólatré innandyra:
  • Mikilvægast er að tréið þorni ekki.
  • Gott er að taka það inn láta það þiðna (ef það stóð úti í frosti). Jafnvel setja það í sturtuna og skola af því. 
  • Þegar það hefur náð herbergishita getur verið gott að skera af 2 cm neðst. (hægt að biðja starfsmenn Garðheima um að gera það þegar tréð er keypt)
  • Gott er að vökva með heitu vatni í fyrstu vökvun og síðan með köldu (þó ekki ísköldu).
  • Tréð þarf að standa í vatni og getur drukkið mikið hvern dag. Drykkjarþörf fer eftir stærð trésins, tegund og hitastigi í stofu, en gott er að fylla á tréð daglega. 

Aðrar upplýsingar

Þyngd N/A